KorpArt hópurinn á Sjónlistamiðstöðinni á Korpúlfsstöðum mun halda
desemberhátíð með ýmsum uppákomum
laugardaginn 4. desember frá kl. 13.00 til 17.00.
Á dagskrá verður:
Opnar vinnustofur listamanna.
Samsýningin "Koma Tímar..." í stóra sal Korpúlfsstaða.
Kl. 13.30 Les Arnfríður Guðmundsdóttir, guðfræðiprófessor upp úr bókinni
"Út í birtuna", sem er eftir Arnfríði og Æju myndlistarkonu.
Kl. 14.00 Dúó Ásgeirs Ásgeirsson, gítar og Hauks Gröndals, saxófón, en þeir
spila í einn til tvo tíma.
Kl. 16.00 Hljómsveitin " 3 raddir og Beatur "
Einkasýning í miðrými hússins "Náðinni" Edda Þórey Kristfinnsdóttir.
Einkasýning í kjallara "Gryfjunni" Kristín María Ingimarsdóttir.
Rósukaffi opið með ilmandi kaffi, kakó og nýju bakkelsi á hóflegu verði.
Gestum gefst tækifæri á að rölta á milli staða í húsinu, skoða húsið og
spjalla við listamennina og hönnuðina um verk þeirra, en mikil fjölbreytni
er þar ríkjandi, s.s. málverk, leirlist, grafík, textíll, hreyfimyndir,
grafísk hönnun og landslagsarkitektúr.
Í vetur verða opin hús fyrsta laugardag í mánuði að janúar undanskildum eins
og undanfarin ár, með breytilegum sýningum og uppákomum.
Allir eru velkomnir.