Opið hús og samsýning á Korpúlfsstöðum

KorpArt-hópurinn á Sjónlistamiðstöðinni á Korpúlfsstöðum í Grafarvogi mun
opna sína stærstu samsýningu; „Birta“, og opna vinnustofur sínar
laugardaginn 1. feb frá kl.13.00 til 17.00.

 

Þá gefst gestum tækifæri á að spjalla við sjálfa listamennina og hönnuðina

um verk þeirra, en mikil fjölbreytni er þar ríkjandi s.s. málverk, leirlist,
textíll, hreyfimyndir, grafísk hönnun og landslagsarkitektúr. Einnig er
kaffi og meðlæti til sölu á hóflegu verði.

 

Í stóra salnum verða 35 listamenn með verk á stærstu samsýningunni til

þessa, undir þemanu Birta.  Ýmsar uppákomur verða í gangi, eins sjá má hér
að neðan:

Kl. 13:00 Dúettinn „UNO“ verður með latino prógram, söngur og píanó.

Kl. 14:00 Rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson verður með upplestur.

Kl. 14:30 Harmonikkuleikur Hinna Tígulegu Dragspilsdrottninga

Kl. 15:00 Vox feminae kvennakórinn mun syngja undir stjórn Margrétar
Pálmadóttur.

Kl. 16.00 SalsaIceland með dansatriði.


Rósukaffi er opið þar sem hægt er að versla kaffi, kakó og nýbakað bakkelsi
á hóflegu verði.

Athugið að sýningin er aðeins opin þennan eina dag.

Nánar má sjá um listamenn og hönnuði á www.korpart.is


Allir eru velkomnir.